Fíkniefni fundust við húsleit í Laugardalshverfi

mbl.is/Július

Fíkniefni fundust við húsleit í Laugardalshverfinu um kvöldmatarleytið í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Talið er að um sé að ræða bæði kókaín og marijúana, nálægt 30 grömmum, og einnig hassolíu, u.þ.b. 150 ml.  Einnig var lagt hald á 200 þúsund krónur í peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Karl um fertugt var handtekinn vegna rannsóknar málsins.

Lögreglan naut aðstoðar fíkniefnaleitarhunds frá tollgæslunni við leitina. Hundurinn kom að mjög góðum notum enda voru fíkniefnin vandlega falin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert