Að sögn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur ræningi, sem framdi vopnað rán í söluturni við Grettisgötu í gærkvöldi, ekki enn fundist. Ungur maður huldi andlit sitt með klút og gekk inn í söluturninn og ógnaði starfsmanni með hnífi.
Atvikið átti sér stað um klukkan hálftólf í gærkvöldi. Ræninginn komst undan með nokkra fjármuni og sígarettur. Að sögn lögreglu stendur rannsókn málsins yfir.