Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um sinubruna í Grafarvogi fyrir skömmu. Að sögn slökkviliðsins var sendur einn bíll á vettvang, og hafði töluverður reykur myndast vegna brunans.
Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu en að sögn slökkviliðs hefur ekki borist beiðni um liðsauka.