Inflúensufaraldurinn, sem verið hefur hér á landi í vetur, hefur náð hámarki og er nú í rénun. Að sögn landlæknisembættisins hafa þrír mismunandi inflúensustofnar gengið yfir sem kunni að skýra, að margir hafa kvartað yfir endurteknum inflúensueinkennum.
Farsóttarlæknir segir, að í bóluefninu gegn inflúensu felist vörn gegn stofnunum þremur.