Reyndu að svíkja fé af kortareikningi

AP

Kona í Árnessýslu fékk undir kvöld í gær hringingu þar sem kona tilkynnti henni á skýrri ensku, að hún hefði unnið ferðalag til ákveðins staðar. Einnig voru gefnar upp trúverðugar vísbendingar um hvernig konan gæti kynnt sér það sem þetta snérist allt um.

Að sögn lögreglunnar á Selfossi kom að þessu loknu karlmannsrödd í símann, sem einnig talaði ensku.Hann þuldi upp upplýsingar um konuna heimili og síma og spurði hvort það væri rétt.  Konan staðfesti þetta.  Þá las hann upp fjórar síðustu tölur í kortanúmeri og spurði hvort það væri ekki réttar tölur á kreditkorti hennar.  Hún staðfesti að svo væri.  Þá bað karlmaðurinn hana um að lesa upp kortanúmerið til að staðfesta hvort þeir væru með réttar upplýsingar.  Konan las upp kortanúmerið. 

Að því loknu kom þriðji aðili inni í símtalið og sá talaði líka ensku.  Sá lét konuna vita að samtalið væri hljóðritað.  Hann spurði hvort konan hefði ekki alveg skilið það sem áður var sagt við hana og útskýrði fyrir henni, að vinningurinn væri fólginn í niðurgreiðslu á ferð og að hennar hlutur væri 989 dollarar sem yrðu teknir af kortareikningi hennar.  Þar með lauk símtalinu. 

Strax að því loknu áttaði konan sig á því að ekki væri allt með felldu og hafði samband við kortafyrirtæki sitt og lét loka kortinu.  Segir lögreglan ljóst, að óprúttnir aðilar hafi á þennan hátt ætlað að svíkja fé út af reikningi konunnar. Þeir hafi hugsanlega komist yfir kortakvittun konunnar. 

Segir lögreglan, að fólk sem fær símhringingar með tilkynningar um að það hafi unnið í einhvers konar happdrættum, ætti að hafa allan vara á.   

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka