Ef flugfreyjur og flugþjónar leggja niður störf er ljóst að það mun hafa mikil áhrif segir formaður Flugfreyjufélags Íslands. Samþykkt var á félagsfundi Flugfreyjufélagsins í gærkvöldi að fela samninganefnd að hefja undirbúning að boðun verkfalls flugfreyja- og þjóna hjá Icelandair.
Sigrún Jónsdóttir, formaður Flugfreyjufélagsins, segir að ekki sé búið að ákveða tímasetningar varðandi fyrirhugað verkfall. Rætt er við hana í sjónvarpsfréttum mbl.
Aðrar helstu fréttir í sjónvarpi mbl:
Engar haldbærar vísbendingar í tengslum við barnsrán í Danmörku
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna: skuldir hækkuðu um 15% á milli ára
Sprengjutilræði á Spáni
Búist við miklu svifryki í dag
Mikið í húfi fyrir Hillary Clinton
Yfir 3000 undirskriftir söfnuðust gegn framkvæmdum í Bakkafjöru