Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Keflavík, var í dag skipaður sýslumaður í Kópavogi frá og með 1. júní. Þrettán umsóknir bárust um stöðuna en Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skipaði í.
Auk Guðgeirs sóttu eftirtalin um:
Birna Salóme Björnsdóttir, aðstoðardeildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík
Bogi Hjálmtýsson, staðgengill og fulltrúi sýslumannsins í Hafnarfirði
Brynjar Kvaran, staðgengill og skrifstofustjóri sýslumannsins í Kópavogi
Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögfræðingur í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
Halldór Frímannsson, sérfræðingur - lögmaður á Fjármálasviði Reykjavíkurborgar
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum
Kristín Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði
Ólafur Hallgrímsson, staðgengill og fulltrúi sýslumannsins á Ísafirði
Sigríður Eysteinsdóttir, löglærður fulltrúi í sifja- og skiptadeild sýslumannsins í Reykjavík
Úlfar Lúðvíksson, staðgengill og skrifstofustjóri sýslumannsins í Reykjavík
Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri hjá sýslumanninum í Reykjavík.