Hugarafl, samtök fólks með geðraskanir en eru í bata, í samvinnu við List án landmæra héldu „geðveikt“ kaffihús í Kaffi Rót að Hafnarstræti 17 í dag. Viðburðurinn mun standa til kl. 17.
Um er að ræða árlegan viðburð og er þetta í þriðja sinn sem hann fer fram. Boðið er upp á skemmtiatriði og „geðveikan bakstur“. „Markmiðið með þessu „geðveika“ kaffihúsi er minnka fordóma gegn geðsjúkum með sýnileika" segir Þórey Guðmundsdóttir, meðlimur í Hugarafli.
Heimasíðu Hugarafls má finna hér.