Bílvelta varð á Reykjarströnd síðustu nótt. Fjögur ungmenni voru í bílnum sem fór a.m.k. 3 veltur. Öll voru þau með öryggisbeltin spennt og sluppu með skrámur. Ökumaður bifreiðarinnar ver 15 ára gamall, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Sauðárkróki.
Einnig gerðist það í nótt að ökumaður á vélhjóli stökk yfir afleggjara og lenti í skurði. Ökumaður slapp með handleggsbrot og nokkrar skrámur. Að mati lögreglu slapp hann vel.