Eldur kviknaði í bíl á ferð

Eldur kviknaði í bíl í Breiðholti í nótt. Ekki var um íkveikju að ræða heldur kviknaði í honum á ferð. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á staðinn og ágætlega gekk að slökkva eldinn. Bíllinn var töluvert skemmdur, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. 

Tveir sinueldar urðu í Hafnarfirði í nótt. Þeir þöktu ekki mikið svæði og vel gekk að slökkva þá. Mikill erill var hjá slökkviliðinu við sjúkraflutninga en þeir voru 42 talsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert