Vélhjólaslys varð á Naustagili í Húsavík fljótlega eftir hádegið. Ökumaður var með farþega í för þegar hann missti vald á hjólinu og það hafnaði á gangstéttarkanti. Ökumaður og farþegi voru fluttir á sjúkrahús. Þeir voru báðir með meðvitund og virtust meiðsli vera minniháttar. Grunur leikur á að ökumaður hafi verið ölvaður, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Húsavík.