50 grömm af amfetamíni fundust við húsleit í Breiðholti á föstudagskvöld . Þrír karlmenn og ein kona voru handtekin vegna málsins, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Á fimmtudagskvöld fannst svipað mikið magn af amfetamíni við húsleit í Árbæ en um tíu önnur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þessa umræddu daga. Í öllum tilvikum var lagt hald á ætluð fíkniefni, mismikið þó.
Fyrrnefndar aðgerðir eru liður hjá lögreglu til að reyna að draga úr sölu og dreifingu á fíkniefnum.