Ungir karlmenn skemmtu sér við það er þeir óku um Langholt á Selfossi í vikunni að láta rúllast útaf plastpokarúllu á akstrinum. Til þeirra sást og náði lögregla til þeirra og gerði þeim að hirða upp pokana.
Fram kemur á heimasíðu Selfosslögreglunnar, að piltunum hafi ekki verið skemmt þegar þeir tíndu upp pokana en þeir hafi ekki átt annars úrkosti. Þá hafi þeir uppskorið háð og spott frá öðrum vegfarendum sem til sáu.