Lögreglan leysti upp fíkniefnapartí

Lögreglan á Selfossi réðist í gærkvöldi til inngöngu í hús á Selfossi þar sem fíkniefnapartí stóð yfir. Lögreglan segir, að auk húsráðanda hafi tveir karlmenn og ein kona verið í húsinu.

Við leit fundust tól til fíkniefnaneyslu auk þess sem á einum karlmannanna fannst amfetamín. Lögreglan segir, að fólkið hafi sýnilega verið undir áhrifum fíkniefna. 

Málið er í rannsókn og mun að henni lokinni verða sent til ákæruvalds.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert