Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins berst nú við mikinn sinueld við svokallaða Flóttamannaleið vestan við Urriðavatn. Samkvæmt upplýsingum varðstjóra slökkviliðs var tilkynnt um eldinn um klukkan tólf en eldurinn breiðist hratt út vegna hvassviðris.
Aðallega logar í lúpínu en eldurinn mun enn vera töluvert langt frá næstu byggð sem er í Setbergslandinu í Hafnarfirði.