Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Péturs Guðgeirssonar, dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur um að hann og tveir meðdómendur eigi að víkja sæti í nauðgunarmáli, en Hæstiréttur ómerkti dóm héraðsdóms í málinu og vísaði því aftur heim í hérað. Átelur Hæstiréttur dómarann fyrir ummæli í úrskurði sínum.
Um er að ræða dóm í máli ungs erlends manns, sem ákærður var fyrir að nauðga ungri konu á salerni á Hótel Sögu. Fjölskipaður héraðsdómur sýknaði manninn og sagði að væri byggt á frásögn stúlkunnar yrði að líta svo á, að það að maðurinn ýtti konunni inn í klefann, læsti klefanum innan frá, dró niður um hana, ýtti henni niður á salernið og síðan niður á gólf geti, hlutrænt séð, ekki talist ofbeldi í skilningi almennra hegningarlaga, eins og það hugtak hafi verið skýrt í refsirétti og í langri dómaframkvæmd. Nægði það eitt til að sýkna manninn.
Hæstiréttur ómerkti þennan dóm og sagði ályktun héraðsdóms um lögskýringu fengi ekki staðist í ljósi dómaframkvæmdar. Í kjölfarið úrskurðaði Pétur Guðgeirsson, að dómendur málsins gætu ekki fjallað frekar um það undir þeim skilmálum, sem þeim hefðu verið settir þar sem að í dómi Hæstaréttar hefði falist fyrirmæli til dómaranna um að álykta beri á tiltekinn veg af atvikum málsins. Hljóti slík íhlutun að vera í andstöðu við ákvæði stjórnarskrárinnar þar sem tryggður er réttur manns til þess að fá fjallað um ákæru á hendur honum fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli.
Hæstiréttur segir í dómnum í dag, að þær ástæður, sem færðar séu í úrskurðinum fyrir því að dómararnir skuli víkja sæti, varði í engu hæfi dómendanna til að fara með málið. Því sé úrskurðurinn felldur úr gildi en Hæstiréttur segir jafnframt, að það sé ekki á hans færi, að leggja fyrir tiltekna héraðsdómara að fara með málið að efni til.
Hæstiréttur segir einnig að í úrskurði héraðsdóms séu ummæli, sem varði ómerkingardóm Hæstaréttar. Slík ummæli eigi ekkert erindi í dómsúrlausn og beri að átelja héraðsdómarann fyrir þau.
Ekki er tekið fram við hvaða ummæli sé átt en í úrskurði héraðsdóms er m.a. talað um vangaveltur Hæstaréttar yfir kvennasalerninu.