Atvinnubílstjórar sem lokuðu Suðurlandsvegi í morgun hafa fjarlægt bíla sína af veginum og er lögregla nú að opna fyrir umferð. Hópur atvinnubílstjóra er þó enn á staðnum og er mikill hiti í þeim.
Samkvæmt heimildum blaðamanns mbl.is sem er á staðnum var einn maður færður inn í lögreglubíl en enginn handtekinn. Þá lá við slagsmálum er bílstjórar kröfðu lögreglumenn um ökuskírteini og önnur skilríki sem þeir höfðu tekið af þeim.