Mótmælendur á Suðurlandsvegi hafa kastað eggjum í lögregluna núna eftir hádegið, og hefur lögreglan á ný beitt piparúða. Ennfremur hefur lögreglan lagt hald á flutningabíla sem standa á veginum og loka honum.
Munu það vera hópar unglinga sem kastað hafa eggjunum í skildi lögreglumannanna.