Engar upplýsingar fást um umferð um Suðurlandsveg í aðalnúmeri lögreglu á höfuðborgarsvæðinu þar sem skiptiborð nær ekki sambandi við umferðardeild. Hjá neyðarnúmeri lögreglu, sem skiptiborð vísar á, fást þær upplýsingar eina að hjáleiðir um Hafravatnsveg og Heiðmörk séu einu leiðirnar sem opnar séu á milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurlands.
Hjá Vegagerðinni fást þær upplýsingar að málið sé alfarið í höndum lögreglu en að þeim sem þangað hafi leitað eftir upplýsingum hafi verið bent á að fara um Bláfjallaleið eða Þingvallaleið.
Suðulandsvegur hefur nú verið lokaður við Rauðavatn frá því klukkan níu í morgun.