Til átaka kom milli lögreglu og atvinnubílstjóra á Suðurlandsvegi skammt frá Rauðavatni í morgun. Lögreglan lét til skarar skríða þegar mótmælendur urðu ekki við fyrirmælum, beittu m.a. piparúða og hótuðu að nota kylfur. Einn lögreglumaður var fluttur á slysadeild en hann fékk stein í andlitið.
Nokkrir bílstjórar og aðrir á svæðinu voru handteknir, en ekki liggur fyrir hversu margir. Nýjar fréttamyndir og viðtal við Sturlu Jónsson, talsmann atvinnubílstjóra, er í MBL fréttum.
Aðrar helstu fréttir í MBL sjónvarpi: