Vélhjólaslys á Akureyri

Laust eftir hádegið í dag varð vélhjólaslys á Hörgárbrautinni á Akureyri er mótorhjólamaður á þrítugsaldri missti stjórn á hjóli sínu og féll við það í götuna.

Maðurinn var á leið norður Hörgárbrautina skammt norðan við Glerá er hann “prjónaði” yfir sig. Hann var fluttur á Sjúkrahús Akureyrar og eru meiðsli hans óljós að svo stöddu, að því er fram kemur á heimasíðu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert