Fíkniefni fundust við húsleit

mbl.is/Július

Fíkniefni fundust við húsleit í miðborginni í fyrrinótt. Talið er að um sé að ræða tæplega 50 grömm af kókaíni og lítilræði af marijúana. Einnig var lagt hald á 150 þúsund krónur í peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Karl um þrítugt var handtekinn vegna rannsóknar málsins, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert