Framkvæmdastjóra og rekstrarstjóra Byggingafélags námsmanna hefur verið vikið frá störfum af stjórn félagsins sem hefur kært meint fjármálamisferli til lögreglu.
Fréttastofa Ríkisútvarpsins skýrði frá þessu í kvöldfréttum sínum en Byggingafélag námsmanna er í eigu nemendafélaga háskóla á höfuðborgarsvæðinu en Háskóli Íslands tengist því ekki.
Félagið á og rekur mörg hundruð íbúðir sem leigðar eru stúdentum.