Nýverið féll dómur í Héraðsdómi Austurlands í máli er lögmenn AFLs Starfsgreinafélags höfðuðu fyrir hönd erlends félagsmanns. Þetta kemur fram á vefsíðu félagsins.
Með dómnum voru allar kröfur félagsins viðurkenndar og viðkomandi fyrirtæki dæmt til að greiða um 600.000 krónur auk álíka upphæðar í málskostnað. Í fréttatilkynningunni segir að þessi dómur sé sá síðasti í röð tuga innheimtu- og vinnuréttarmála er félagið hefur unnið fyrir dómstólum síðuðustu ár.
„AFL hefur aðeins tapað einu máli síðustu ár og lögum er varða viðkomandi málsatvik í því máli var breytt skömmu síðar þannig að sambærilegt mál myndi vinnast í dag,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Að eigin sögn beitir AFL Starfsgreinafélag ákveðnum verkferlum við innheimtu og hagsmunagæslu fyrir félagsmenn og þrátt fyrir mikinn málafjölda síðustu ára hafi félagið ávallt boðið viðeigandi fyrirtækjum viðræður um málsatvik og sátt – hafi þess verið nokkur kostur. „Oft tekst að leysa mál þannig áður en til stefnu eða málaferla kemur – en sinni fyrirtæki ekki erindum félagsins fylgja lögmenn málum eftir,“ segir í tilkynningunni.