Mótmælaganga Sturlu

Sturla Jónsson við trukkinn sinn.
Sturla Jónsson við trukkinn sinn. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Sturla Jónsson atvinnubílstjóri hyggst ganga frá Húsi Verslunarinnar í Kringlunni í Reykjavík á Austurvöll í dag klukkan þrjú til að mótmæla eldsneytisálögum og reglum um hvíldardaga flutningabílstjóra.

Í tilkynningu frá Sturlu til fjölmiðla segir: „Í ljósi þess að ökutæki mitt hefur verið tekið af mér og þar af leiðandi hef ég verið sviptur atvinnutæki, geng ég persónulega einnig vegna þess."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka