Nýir gsm sendar settir upp

Nýjum sendi komið fyrir í Vestmannaeyjum.
Nýjum sendi komið fyrir í Vestmannaeyjum.

Fjórðungur þeirra GSM senda sem ráðgert er að tæknimenn Vodafone setji upp á árinu eru kominn í notkun.  Alls hafa 35 nýir GSM sendar verið gangsettir um allt land og tryggt GSM samband á fjölmörgum svæðum sem ekki höfðu notið slíkrar þjónustu fyrr.
 
Í fréttatilkynningu frá Vodafone segir: „11 nýir GSM sendar voru gangsettir í byrjun vikunnar en aldrei hafa fleiri sendar verið gangsettir í einni og sömu vikunni. Flestir þessara senda eru á Vestfjörðum, t.d. í Súgandafirði, á Bolungarvík og Ísafirði en einnig voru nýir sendar gangsettir á Norðurlandi, t.d. á Siglufirði, Ólafsfirði og Skollahnjúk í S-Þingeyjarsýslu.

Meðfylgjandi myndir voru hins vegar teknar í Vestmannaeyjum, en þar voru settir upp tveir sendar sem tryggja GSM samband langt á haf út og styrkja sambandið í Eyjum. Þá var nýr sendir gangsettur í Flatey á Breiðafirði fyrir fáeinum dögum og annar á Klakki við Grundarfjörð. Sá síðarnefndi tryggir þjónustu m.a. í Kolgrafafirði og við Kvíabryggju sem hingað til hefur ekki verið í GSM sambandi.

Sams konar bylting hefur orðið á  mörgum öðrum svæðum á landinu á þessu ári. Til dæmis er GSM samband nú komið á Kjöl og Sprengisand, þrír nýir sendar tryggja nú GSM samband í Fljótum - Siglfirðingum til mikillar ánægju, Gemlufallsheiði (milli Flateyrar og Þingeyrar) komst í GSM samband fyrir skemmstu þegar nýr sendir var gangsettur í grennd við Holt í Önundarfirði - og nýr langdrægur sendir á fjallinu Strúti tryggir GSM samband á Arnarvatnsheiði, vestanverðum Langjökli og í umlykjandi sveitum. Þá komst Hólasandur, norðan Mývatns, í GSM samband í fyrsta sinn á dögunum og áfram mætti telja.

Vodafone mun halda uppbyggingunni áfram út árið og á næstu vikum munu íbúar á völdum svæðum finna áþreifanlega breytingu. Uppsetning á langdrægum sendi á Bolafjalli við Bolungarvík er ráðgerð á næstu dögum en langdrægu sendarnir eiga að tryggja GSM samband í allt að 100 km á haf út, líkt og nýir sendar á Húsavíkurfjalli og Steinnýjastaðafjalla (ofan Skagastrandar) gera nú þegar. "

Í tilkynningunni er einnig tekið fram að allir GSM notendur hringt neyðarsímtöl í 112 þar sem GSM þjónusta er á annað borð í boði.


Þyrla var einnig notuð til verksins.
Þyrla var einnig notuð til verksins.
Frá Vestmannaeyjum.
Frá Vestmannaeyjum.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka