Lögregla höfuðborgarsvæðisins handtók tvo 24 ára menn sem höfðu verið með háreysti og læti í verslun 10-11 í Austurstræti kl fimm í nótt. Öryggisverðir verslunarinnar höfðu beðið mennina að róa sig en þá réðist annar mannanna á öryggisvörð og rak honum hnefahögg í andlitið.
Mennirnir sem voru ölvaðir voru báðir handteknir og gista nú fangageymslu og verður mál þeirra tekið fyrir síðar í dag.
Annars var nóttin róleg í höfuðborginni að sögn lögreglu, þó voru fimm ökumenn teknir fyrir ölvunarakstur í nótt.