Mikill sinueldur er við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði og samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins gengur erfiðlega að slökkva eldinn en slökkviliðsmenn af tveimur stöðvum eru að berjast við eldinn. Hefur eldurinn borist í tré og annan gróður og er talið að það taki að minnsta kosti klukkustund til viðbótar að slökkva eldinn en tilkynnt var um hann klukkan 12:30.