Brot 39 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Breiðholti á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, við Tindasel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 61 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 64%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tíu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 63.
Brot 54 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í Breiðholti á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, að Dvergabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 57%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sextán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 67, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.