Deilur á Landspítala að leysast?

mbl.is/Ásdís

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að hann hefði góðar vonir um að það rætist úr málum á Landspítala áður en þessi dagur verður að kveldi kominn. Boðað hefur verið til blaðamannafundar á Landspítalanum síðdegis um vinnutímatilskipun Evrópusambandsins sem taka á gildi 1. maí fyrir hjúkrunarfræðinga á skurðstofum og við svæfingar.

Geir var að svara fyrirspurn frá Álfheiði Ingadóttur, þingmanni VG, sem spurði hvernig ríkisstjórnin hygðist bregðast við yfirvofandi neyðarástandi á Landspítala ef hjúkrunarfræðingar á svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusviði Landspítala hætta störfum um mánaðamótin eins og útlit hefur verið fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert