Hált á Hellisheiði

Hálkublettir eru á Hellisheiði og skafrenningur er á Holtavörðuheiði ásamt hálkublettum. 

Vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar er nauðsynlegt að sýna þar aðgát. Sérstaklega er ætlast til fólk fari varlega við framhjáhlaup við Voga, Grindavíkurveg og Njarðvík. Mikilvægt er að virða hraðatakmarkanir.

Á Vestfjörðum er þungfært á Steingrímsfjarðarheiði og stendur mokstur þar yfir. Hálka og hálkublettir eru á flestum fjallvegum.

Á Norðurlandi er hálka og hálkublettir á flestum fjallvegum. Á Norðausturlandi eru hálkublettir á Mývatnsöræfum. Snjóþekja er á Melrekkasléttu og þæfingsfærði á milli Raufarhafnar og Þórshafnar.

Hálka er á Sandvíkurheiði, á Hárekstaðaleið og Möðrudalsöræfum. Snjóþekja á Vopnafjarðarheiði. Hálkublettir eru á Vatnsskarði eystra. Hellisheiði eystri er ófær.

Á Suðausturlandi er vegir víðast hvar greiðfærir. Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir víða og eru flutningsaðilar beðnir að kynna sér það nánar í síma 1777.

Vegna framkvæmda á Hringvegi 1 í Borgarnesi er umferð beint um hjáleið. Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og tillitsemi. Einnig er unnið við slitlagsviðgerðir í Norðurárdal og á Borgarfjarðarbraut og þar er hætta á grjótkasti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert