UJ hafna hugmyndum um varalið lögreglu


Ungir jafnaðarmenn hafna hugmyndum dómsmálaráðherra, Björns Bjarnasonar, um varalið lögreglu og hvetja þess í stað til að almenn og sýnileg löggæsla verði efld. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Björn hefur lýst því yfir að stofnun varaliðs verði rædd við endurskoðun
lögreglulaga. UJ biðja löggjafann að hafa eftirfarandi í huga komi stofnun
varaliðs til tals:

Atburðir síðastliðinnar viku hafa sýnt hversu mikilvægt er að lögreglufólk sé
vel þjálfað og geti staðist álag í starfi sínu af fagmennsku. Með því að leggja til stofnun varaliðs með hálf-þjálfuðum mannskap er gert lítið úr mikilvægi menntunar og hæfni.

Verði lagt upp með að varalið sé jafnvel í stakk búið og fullþjálfað
lögreglufólk væri nær að verja peningunum í að fjölga í almennri löggæslu. Á því er brýn þörf eins og Samfylkingin hefur bent á, m.a. í borgarstjórn. Mikill kostnaður myndi fylgja stofnun nokkur hundruð manna varaliðs og sjá Ungir jafnaðarmenn ekki þörfina á þeim útgjöldum.

Að lokum er alvarlegt umhugsunarefni að varalið sem innihéldi m.a. björgunarsveitarfólk, gæti grafið undan því gífurlega mikilvæga starfi sem
þúsundir manna vinna í sjálfboðavinnu fyrir björgunarsveitirnar. Þessu
mikilvæga fjöreggi sem almannasamstaða er um, ætti ekki að kasta frá sér," samkvæmt tilkynningu UJ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert