Hópur kvenna, sem starfa hjá Flugfélagi Íslands, hefur fundið upp á nýstárlegri leið til að safna fé til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands og ætlar að selja varagljáa frá YSL undir slagorðinu „Á allra vörum“.
Verður hægt að kaupa varagljáann í flugvélum Icelandair og í fríhafnarverslun Flugfélags Íslands í Reykjavík. Hægt er að velja um tvo liti, bleikan eða glæran.
Söfnunarátakinu var hleypt af stokkunum í gær, og á myndinni bera þær gljáa á varirnar fyrir gott málefni, Gróa Ásgeirsdóttir sem er einn af umsjónarmönnum söfnunarinnar, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra.