Lúðrasveitahljómur ómar nú um Reykjavík en kröfu- og skrúðgöngur lögðu víða af stað í borginni um klukkan eitt í dag. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hefur ekkert sérstakt komið upp á þrátt fyrir að „nú sé dagurinn til mótmæla“ eins og lögreglumaður sem blaðamaður mbl.is ræddi við komst að orði.
Aukaviðbúnaður er hjá lögreglu í dag vegna fjölda samkoma og sérstakra verkefna í umferðarstjórnun en samkvæmt upplýsingum varðstjóra er viðbúnaður ekki meiri nú en á 1. maí undanfarin ár.
Köfuganga leggur af stað frá Hlemmi klukkan 13.30. Gengið verður niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Útifundur mun síðan hefjast á Ingólfstorgi klukkan 14.10.
Skrúðgöngur eru hins vegar farnar um hverfi íþróttafélaganna Fram og Víkings í Reykjavík í dag í tilefni af aldarafmælum þeirra.
Skrúðganga