Bifhjólamaður var fluttur á Landspítala í Reykjavík eftir að hann slasaðist skammt frá Sandgerðisvegi í námunda við Rockville í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum mun ökumaðurinn hafa látið hjólið prjóna en fékk hjólið yfir sig og meiddist á kvið.
Þá var tilkynnt um árekstur tveggja bíla á Reykjanesbraut á gatnamótum Grindavíkurvegar. Þar hafði bíll komið af Grindavíkurvegi og ekið í veg fyrir bíl, sem ekið var vestur Reykjanesbraut. Engin slys urður á fólki og voru bílarnir báðar í ökuhæfu ástandi eftir óhappið.