Hvetur fyrirtæki til að gæta hófs

Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur aðildarfyrirtæki samtakanna til þess að gæta hófs og aðhalds við verðlagningu í því umróti sem ríkir um þessar mundir. Segir stjórnin, að samdráttur eftirspurnar sé fyrirsjáanlegur og af því leiði að ekki verði unnt að velta öllum kostnaðarhækkunum áfram út í verðlag.

Stjórnin segir afar brýnt að allir, sem áhrif hafa á framvinduna á næstu mánuðum og misserum, þ.e. ríkisstjórn, stjórnarandstaða, sveitarfélög og aðilar á almennum og opinberum vinnumarkaði, stilli saman strengi sína með það að markmiði að draga úr verðbólgu og koma í veg fyrir að miklar verðbólguvæntingar festist í sessi. 

„Hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu og matvælum hefur rýrt kjör þjóðarinnar og á sama tíma þarf þjóðin að horfast í augu við að hátt gengi krónunnar undanfarin ár hélt uppi hærri kaupmætti en fékk staðist til langframa. Við núverandi aðstæður er yfirvofandi  hætta á víxlverkandi hækkunum launa og verðlags og áframhaldandi veikingar gengis krónunnar sem allir tapa á. Þá atburðarás er hægt að koma í veg fyrir," segir stjórn SA í ályktun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert