Skrifað undir samning um Reykjanesbraut

Reykjanesbraut.
Reykjanesbraut. vf.is/Þorgils

Skrifað var í dag undir samning milli Vegagerðarinnar og Ístaks hf. um tvöföldun Reykjanesbrautarinnar frá Strandarheiði til Njarðvíkur eftir endurútboð. Vegagerðin hafði áður hafnað tilboði Adakris/Topp verktaka í verkið þar sem verktakinn stóðst ekki þær kröfur sem Vegagerðin gerir.

Tilboð Ístaks í verkið hljóðaði upp á ríflega 807 milljónir króna en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á 770 milljónir.  Undirverktaki vegna malbikunar verður Hlaðbær – Colas malbikunarstöð og eftirlit verður í höndum Mannvits hf.

Ístak hyggst hefjast handa mánudaginn 5. maí. Áætlað er að þann 16. október verði unnt að aka útboðskaflann á fjórum akreinum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert