Engan sakaði þegar þriggja manna þyrla nauðlenti skammt norðan við Kleifarvatn um hádegisbil í dag. Tveir voru í vélinni, flugmaður og farþegi. Ekki liggur fyrir hvers vegna vélin nauðlenti. Hún mun vera eitthvað skemmd.
Þyrlan er af gerðinni Hughes 300c, í eigu Þyrluþjónustunnar. Sindri Steingrímsson flugrekstrarstjóri tjáði fréttavef Morgunblaðsins að hvorugan sem um borð var hafi sakað.
Þyrla Landhelgisgæslunnar fór á vettvang þar sem ekki er bílfært á þær slóðir þar sem þyrlan nauðlenti.