Maður var handtekinn á Akureyrarflugvelli í gær. Hann reyndist með 20 grömm fíkniefna innvortis.
Það var við venjubundið eftirlit um miðjan dag í gær að karlmaður um þrítugt var handtekinn við komuna frá Reykjavík frá Akureyrar eftir að fíkniefnaleitarhundur lögreglunnar hafði gefið til kynna að hann væri með fíkniefni í fórum sínum. Við frekari rannsókn kom í ljós að hann hafði tæplega 20 grömm af hvítum efnum innvortis.
Var maðurinn færður á lögreglustöðina þar sem mál hans var afgreitt og var hann síðan laus úr haldi lögreglu þá um kvöldið.