Grunaður um kynferðisbrot gagnvart 5 börnum

Háskólakennari hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 11. apríl vegna gruns um að hann hafi ítrekað nauðgað börnum sínum fjórum, dætrum og syni, á fimmtán ára tímabili. Þá hefur borist kæra vegna brota gegn stúlku utan fjölskyldunnar, vinkonu einnar dóttur kennarans.

Elstu brotin voru framin fyrir hartnær fimmtán árum síðan. Nýjustu brotin voru framin í vetur, samkvæmt frétt í DV í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka