Sveitarfélagasamtök ESB funda í Reykjavík

„Þetta eru helstu hagsmunasamtök sveitarfélaga í Evrópu og sem slík eru þau viðsemjendur framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um ýmis mál, stundum á forstigi, stundum ekki. Þau gæta hagsmuna gagnvart Evrópusambandinu með því að upplýsa kjörna fulltrúa og embættismenn framkvæmdastjórnar,“ segir Anna Margrét Guðjónsdóttir, forstöðumaður Brusselskrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga, um hlutverk Evrópusamtaka sveitarfélaga, sem funda hér í Reykjavík í vikunni.

„Það eru sveitarfélagasamtök þrjátíu og sex landa í þessum samtökum. Þau sinna ýmsum öðrum verkefnum en hagsmunagæslu gagnvart ESB, enda var upphaflegt hlutverk þeirra að efla samvinna sveitarfélaga í Evrópu, sem er enn eitt af lykilhlutverkum þeirra.

Fundurinn er haldinn tvisvar á ári, en ástæða þess að hann er á Íslandi núna er sú að Samband íslenskra sveitarfélaga opnaði skrifstofu í Brussel fyrir tæplega tveimur árum og síðan hefur þátttaka íslenskra sveitarfélaga í starfinu aukist mjög mikið. Við lögðum í framhaldinu fram tillögu um að fundurinn yrði haldinn hér og samtökin féllust strax á það. Það er verið að ræða nýja stjórnarskrá ESB og margt fleira. “

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert