„Ég get ekki sagt að mig hafi nokkurn tímann dreymt um að fara þangað,“ segir Ásdís Rán um Playboysetrið, þangað sem henni hefur verið boðið í partí um næstu helgi. „Ég hef haft áhuga á því að hitta Hugh Hefner upp á viðskiptasambönd. Ég vil koma fleiri stelpum frá Skandinavíu í Playboy. Það hefur verið nær ómögulegt hingað til. Ég verð bara að nota gamla góða sjarmann á Hugh.“ Ásdís ætlar að blogga um heimsóknina á asdisran.blog.is.