Ellilífeyrisþegar sem ekki fá eftirlaun úr lífeyrissjóðum munu fá sérstaka uppbót ef frumvarp sem félagsmálaráðherra hefur lagt fram verður að lögum. Uppbótin getur numið allt að 25 þúsund krónum á mánuði en gert er ráð fyrir að um fimm þúsund einstaklingar fái uppbót á sín eftirlaun.