Vísa gagnrýni Haga á bug

Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri ASÍ vísar á bug gagnrýni Finns Árnasonar forstjóra Haga á verðkönnun ASÍ sem fjallað var um í blaðinu í gær. Sagði Finnur niðurstöðu könnunarinnar ekki geta staðist og véfengdi vinnubrögð ASÍ.

Gylfi segir verðkönnun ASÍ mæla það verð sem neytendur standa frammi fyrir, sem vissulega geti tekið breytingum. „En það vekur athygli okkar að þessar sveiflur virðast vera svolítið í eina áttina og billegt að reyna að útskýra það með því að Alþýðusambandið sé óvandað í sínum vinnubrögðum, frekar en að verslunareigendur leiti skýringa hjá sér sjálfum,“ segir Gylfi og vísar gagnrýni Haga til föðurhúsanna. „Hagar hafa valið sér þennan málflutning, að gagnrýna Alþýðusambandið í sínum störfum. Ég held að mönnum sé minnisstætt hvernig Hagar reyndu að hafa áhrif á mælinguna síðastliðið haust og var það þeim ekki til virðingarauka.“

Þá ítrekar Gylfi að ágætt fólk starfi hjá ASÍ við gerð verðkannana, og vandi þetta fólk vinnubrögð sín í hvívetna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert