Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um olíuleka nærri gatnamótum Borgartúns og Höfðatúns um eitt leytið í dag. Að sögn slökkviliðs fór lyftari sem var að flytja tank á hliðina og láku 200 lítrar af díselolíu á götuna. Hreinsibíll var sendur á vettvang og hefur slökkvilið lokið störfum þar.
Þá lak töluvert af olíu úr bíl við Bílabúð Benna á Vagnhöfða fyrir skömmu og er slökkviliðið nú að störfum þar við að hreinsa upp olíuna.