Vegna ummæla formanns Íslandsdeildar Amnesty International í á mbl.is í gær, vill Taser International koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri.
„Þrátt fyrir að engin valdbeiting sé hættulaus, þar á meðal með Taser tækjum, hafa sérfræðingar á sviði læknisfræði og nýlegar rannsóknarskýrslur frá stjórnvöldum í Kanada, Bretlandi og Bandaríkjunum, leitt í ljós að Taser tæki eru með öruggustu valdbeitingartækjum sem notuð eru til að yfirbuga ofbeldisfulla einstaklinga sem myndu að öðrum kosti skaða lögreglumenn, saklausa borgara eða sjálfa sig.
Að mati lækna og sérfræðinga á sviði löggæslu eru Taser tækin, með réttri notkun öflugustu og áhrifaríkustu valdbeitingartæki sem löggæslustofnunum stendur til boða við að ná stjórn á ofbeldisfullum aðstæðum sem þar sem heilsu lögreglumanna, saklausra borgara og brotamanna sjálfra er stefnt í hættu.
Til eru fleiri en 120 rannsóknir á öryggi Taser tækja og áhrifa þeirra á líkamann. Um það bil 80 prósent þeirra eru óháðar og á engan hátt tengdar Taser International. Þeirra á meðal eru nokkrar nýlegar sem fjármagnaðar voru með styrkjum frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu.
Niðurstöður þeirra rannsókna sýna fram á að Taser tækin eru örugg valdbeitingartæki sem framleiða háa spennu og lágan straum sem getur ekki valdið dauða. Nýjustu rannsóknirnar má nálgast á vefsíðu Taser International www.taser.com undir liðnum Research.
Amnesty International horfir viljandi framhjá þessum mikla fjölda óháðra rannsókna en kýs frekar að vísa í blaðafyrirsagnir æsifréttablaða sem samtökin leggja svo á borð fyrir almenning sem rannsóknarvinnu.
Bæði Amnesty og Taser International voru stofnuð í göfugum tilgangi. Það vekur þó ugg að Amnesty International skuli halda uppi óvísindalegum óhróðri og dylgjum þegar samtökunum er fullkunnugt um þá staðreynd að í málum þar sem dauðsföll hafa orðið við handtöku og Taser tæki hafa komið við sögu, hafa réttarmeinafræðingar nær undantekningalaust útilokað Taser tækin sem orsakavald. Taser International mun halda áfram að fræða almenning með vísindalegum staðreyndum og um leið eyða ranghugmyndum og ýkjum Amnesty International um tækjabúnaðinn. Tilgangur Taser International er og verður að bjarga mannslífum.
Í nýlegri rannsókn, sem fjármögnuð var af bandaríska dómsmálaráðuneytinu og framkvæmd af vísindamönnum við læknadeild Wake Forest háskólann í Bandaríkjunum, var niðurstaðan sú að Taser valdbeitingartækin eru örugg og valda í undantekningartilfellum mildum áverkum. Vísindamennirnir skoðuðu mál 962 einstaklinga sem yfirbugaðir höfðu verið með Taser frá júlí 2005 til júní 2007. Af þessum 962 þurftu 3 (0.3%) að leita aðstoðar lækna vegna falláverka. Þar sem Taser tæki hafa verið tekin í notkun hefur dregið úr slysum á lögreglumönnum og hinum handteknu um allt að 80 prósent," að því er segir í yfirlýsingu frá Taser.