Líkamsárás var framin í miðbæ Vestmannaeyja í nótt. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum átti árásin sér stað á milli tvö og þrjú í nótt og voru báðir aðilar ölvaðir.
Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur til athugunar að ósk læknis.
Að sögn lögreglu voru nokkur vitni að árásinni og var gerandinn færður í fangageymslu lögreglu og verður hann yfirheyrður í dag.