„Þurfti bara að pissa"

mbl.is/Július

Tilkynnt var um innbrot í Baðhúsið Brautarholti rétt fyrir klukkan fimm til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan handtók innbrotsþjófinn á staðnum sem sagðist bara hafa þurft að pissa, en hann er gamall góðkunningi lögreglunnar. Var honum sleppt eftir að rætt hafði verið við hann.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var rólegt á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þrír voru kærðir fyrir ölvun við akstur en fáir voru í miðbænum enda veður ekki spennandi til útiveru. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert