Tveir voru teknir fyrir akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna og einn var tekinn fyrir ölvunarakstur á Akureyri í nótt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Að sögn lögreglunnar á Akureyri gekk nóttin að öðru leyti vel fyrir sig þrátt fyrir nokkurn eril í bænum.