Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði ökumann bifhjóls á Vesturlandsvegi um sjö leytið í gærkvöldi en hann var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Að sögn lögreglu voru tveir menn á hjólinu og við nánari athugun fannst eitthvað magn af kannabisefnum í fórum þeirra. Mennirnir voru handteknir og færðir til skýrslutöku en sleppt að henni lokinni.